AÐALFUNDARBOÐ / ANNUAL MEETING
[English below]
Klifurfélag Vestfjarða heldur aðalfund sinn, mánudaginn 20. apríl, klukkan 17:00. Fundurinn verður í gamla skátaheimilinu, Mjallargötu 4 á Ísafirði en þar er inniklifuraðstaða félagsins.
Allir eru velkomnir á fundinn, ungir sem aldnir. Fólki býðst að ganga í félagið til að styðja við það og njóta þeirra fríðinda sem aðild fylgja.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Kjör fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla formanns.
- Lagðir fram skoðaðir reikningar síðasta árs.
- Lagabreytingar.
- Kjör formanns.
- Kjör meðstjórnenda.
- Kjör tveggja varamanna.
- Kjör skoðunarmanns og skoðunarmanns til vara
- Önnur mál.
Á þessum aðalfundi þarf að kjósa um nýjan formann og meðstjórnendur. Er því óskað eftir framboðum í þessar stöður. Skv. lögum félagsins skulu framboð berast eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Lög félagsins má finna hér.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Fyrir hönd Klifurfélags Vestfjarða,
Björgvin Hilmarsson
ANNUAL MEETING
The Westfjords Climbing Club will have it´s annual meeting on Monday the 20th of April at 17:00. The meeting will be held in the old scout house, at Mjallaragata 4, Ísafjörður where the indoor climbing gym is located.
Everyone is welcome to the meeting, young and old. People will have the opportunity to join the club and that way support it and enjoy the benefits that come with membership.
The schedule of the meeting:
- Election of chairperson and secretary of the meeting.
- Club’s chairman report.
- Last year’s audited accounts submitted.
- Law changes.
- Election of the club chairman.
- Election of other board members.
- Election of two substitute board members.
- Election of annual account inspector and substitute annual account inspector
- Other matters.
This time a new club president will be elected, also members of the board. Candidates need to announce their participation at least two days before the annual meeting, according to the club´s laws.
The laws of the club can be found here [Icelandic only].
We look forward to see you.
On behalf of Westfjords Climbing Club,
Björgvin Hilmarsson
BH



