Klifurfélag Vestfjarða

Inniklifur

Sett hefur verið upp inniklifuraðstaða á Ísafirði, í gamla skátaheimilinu Mjallargötu. Líklega er klifur innanhúss, í manngerðum veggjum, fjölmennasta grein klifurs í heiminum í dag.

Það er vinsælt að halda barnaafmæli í skátaheimilinu! Lesið meira um það hér að neðan.

Inniklifuraðstaðan á Ísafirði

Nú er kominn vísir að inniklifuraðstöðu í gamla skátaheimilinu, Mjallargötu 4 á Ísafirði. Þótt hún sé ekki stór þá er þetta byrjunin og vilji til að gera meira. Stefnt er á að hafa reglulega opnunartíma í vetur og bjóða fólki upp á að halda þar barnaafmæli (sjá nánar um það hér neðar).

Síðasta misseri var verið að nota aðstöðuna af og til eftir að dúkur var kominn á dýnurnar. Nemendur úr háskólasetrinu sýndu þessu mikinn áhuga og fengu að komast inn til að klifra. Nú þegar hafa verið haldin nokkur barnaafmæli í salnum og fólki er velkomið að hafa samband ef áhugi er á slíku.

Á liðnu sumri voru haldin námskeið í samstarfi við HSV þar sem Hjördís Björnsdóttir var yfirleiðbeinandi. Þessi námskeið voru vel sótt og þóttu takast vel.

Viltu halda klifurafmæli?

Hér á Ísafirði eru ekki margir staðir sem henta til þess að halda gott barnaafmæli, íþróttasalurinn þó alltaf vinsæll. En er ekki kominn tími til að prófa eitthvað nýtt?

Í gamla skátaheimilinu þar sem inniklifuraðstaðan er hafa verið haldin barnaafmæli. Þar er góð aðstaða til að sitja og borða kökur, pizzur eða hvað sem er annað, nóg af sófum og borðum.

Börnunum finnst mjög gaman að leika sér í klifuraðstöðunni. Fyrir utan að klifra er hægt að hengja upp pinjötur, fara í kassaklifur og allskyns leiki. Í skátaheimilinu er einnig lítið, kósý og mjög skemmtilegt bíóherbergi með skjávarpa og stóru tjaldi. Auðvelt er að tengja fartölvu við skjávarpann.

Þegar haldin eru afmæli þá er alltaf leiðbeinandi frá Klifurfélagi Vestfjarða sem sér um að leiðbeina börnunum þegar kemur að klifrinu og öðru sem nýtir þá aðstöðu. Þó þarf alltaf forráðamaður afmælisbarns að vera til staðar og sjá um annað en það sem beint tengist klifrinu.

Eitthvað er til af klifurskóm sem má fá að láni en einnig er í lagi að klifra á hreinum inniíþróttaskóm. En gott er þó að þeir séu ekki of stórir né of mjúkir. Mælum ekki með að klifrað sé án þess að vera í skóm.

Hámarksfjöldi barna í barnaafmæli í þessari aðstöðu er 20.

Að halda barnaafmæli í skátaheimilinu (tveir klukkutímar), kostar 30 þúsund en inni í því er leiðbeinandi frá Klifurfélagi Vestfjarða og ýmis búnaður sem tengist klifrinu, einnig þrif eftir afmælið.

Til að sækja um að fá að halda barnafæmæli í skátaheimilinu og athuga með hvenær er laust, eða bara fá nánari upplýsingar, vinsamlegast sendið póst á info@klifra.is 

Hvar er klifuraðstaðan?

Inniklifur annars staðar á landinu

Í dag eru allnokkur klifurhús á landinu sem bjóða upp á klifur í manngerðum veggjum innanhúss. Flest eru með lágum veggjum þar sem klifrari er ekki í línu en önnur bjóða upp á hærri veggur og línuklifur.