Klifurfélag Vestfjarða

Grjótglímuleiðarvísir fyrir Ísafjörð / Bouldering guidebook for Ísafjörður

Nú er kominn út leiðarvísir yfir grjótglímuleiðir á Ísafirði og nágrenni. Leiðarvísirinn er mjög yfirgripsmikill og má í honum finna hátt í þúsund leiðir eða “problems” eins og það er kallað á ensku.

[English below]

Það var Brendan Kirby sem setti leiðarvísinn saman, lagði gríðarlega vinnu í þetta verkefni og útkoman er glæsileg. Þetta er langstærsti grjótglímuleiðarvísir sem litið hefur dagsins ljós á Íslandi og mun nýtast klifrurum vel.

Með þessu tímamótaverki gerir Brendan grjótglímu á Ísafirði og næsta nágrenni aðgengilega með skipulegum hætti. Leiðarvísirinn er ríkulega myndskreyttur og stútfullur af hagnýtum upplýsingum.

Brendan setti upp og klifraði langflestar leiðirnar sem teknar eru saman í leiðarvísinum. Eitthvað hafði áður verið klifrað en ekki skrásett af neinu ráði. Leiðarvísirinn er því kærkominn og á Brendan stórt og mikið hrós skilið fyrir verkið.

Stafræna útgáfu af leiðarvísinum má finna hér. Leiðarvísirinn er einnig aðgengilegur á leiðarvísasíðu Íslenska Alpaklúbbsins.

A guidebook listing bouldering routes in Ísafjörður and its surroundings has now been published. The guidebook is very comprehensive and contains close to a thousand routes or “problems” as they are also called.

It was Brendan Kirby who made the guidebook, put a lot of work into the project and the result is very impressive. This is by far the largest bouldering guidebook that has ever seen the light of day in Iceland and will be of great value to climbers.

With this groundbreaking work, Brendan makes bouldering in Ísafjörður and the near by area accessible in an organized manner. The guidebook is richly illustrated and packed with practical information.

Brendan set up and climbed the vast majority of the routes compiled in the guidebook. Just a few had been climbed before but not documented. The guidebook is therefore very welcomed and Brendan deserves a great praise for his work.

Digital version of the guidebook can be found here.

 

BH

Share the Post:

Eldri fréttir og pistlar