Í nokkur skipti nú fyrr í maí fengum við heimsóknir frá leikskólanum Eyrarskjóli á Ísafirði. Samtals vou það 32 börn, þriggja til fjögurra ára, sem kíktu við og skemmtu sér vel við að klifra, leika sér í fimleikahringjunum og hoppa á dýnunum.
Fengum svipaðar heimsóknir í fyrra einnig, svo það stefnir í það þetta verði árlegt. Tilefnið er svokölluð áræðnilota þar sem hugtökin kjarkur, kraftur, virkni og frumkvæði eru höfð að leiðarljósi.
Hér að neðan má finna nokkrar myndir sem þau á Eyrarskjóli sendu okkur.
Takk fyrir komuna og sjáumst vonandi að ári.