Nemendur úr Menntaskólanum á Ísafirði komu í heimsókn til okkar í síðustu viku. Þá voru í gangi hinir árlegu Gróskudagar MÍ. Eins og venjulega var klifursmiðja hluti af þeirri dagskrá.
Um 20 nemendur tóku þátt og stóðu sig vel, nokkrir vel efnilegir í hópnum. Við vonum bara að þeir fari að leggja klifrið fyrir sig.
Við hlökkum auðvitað til að sjá nemendur úr MÍ að ári, á næstu Gróskudögum, en þangað til eru þeir og aðrir velkomnir á opna tíma sem eru í inniklifuraðstöðunni fjórum sinnum í viku, allan veturinn.
Hér að neðan eru nokkrar myndir sem þau sendu okkur og einnnig má hér finna myndir síðan í fyrra.




