Gögn aðalfunda
Klifurfélag Vestfjarða
Aðalfundur 2026 / Annual general meeting 2026
Skýrsla formanns á aðalfundi 2026 / Club chairman’s report 2026 (Icelandic and English. See also below)
Ársreikningur 2025 / Annual account 2025 (Icelandic only)
Lög Klifurfélags Vestfjarða / Laws of the Westfjords Climbing club (Icelandic only)
Fundargerð aðalfundar / Minutes of the annual meeting (Icelandic only)
Skýrsla formanns:
[English below]
Velkomin á aðalfund Klifurfélags Vestfjarða. Vil benda á að þessi skýrsla ásamt ársreikningi og lögum félagsins, má finna á vefnum okkar undir slóðinni https://klifra.is/adalfundur/. Þar er einnig að finna upplýsingar frá liðnum aðalfundum. Þessi síða er uppfærð árlega, rétt fyrir aðalfund.
Minni á að allar helstu upplýsingar um félagið má finna á vefsíðunni klifra.is þar á meðal hver tilgangur þess er, þar má finna lög félagsins, fréttir, ýmsar upplýsingar um klifur og klifursvæði og ýmislegt fleira.
Félagið er starfrækt af sjálfboðaliðum, áhugafólki um klifur. Það stólar því á styrki fyrst og fremst. Helstu styrktaraðilar í gegnum tíðina hafa verið Borea Adventures, sem er klárlega okkar helsti fjárhagslegi bakhjarl, Ísafjarðarbær, Arna og Orkubú Vestfjarða, ásamt fleirum. Takk kærlega til allra sem hafa lagt til fjármuni og/eða vinnu.
Ég mun seint þreytast á að nefna að Uppbyggingarsjóður Vestfjarða hefur þrisvar neitað félaginu um styrk. En vil þó nefna að Brendan Kirby fékk styrk úr sjóðnum til að gera leiðarvísi um grjótglímuleiðir sem hann kláraði nýlega. Meira um þann leiðarvísi hér rétt á eftir.
Að venju ætla ég að fara yfir fjölda iðkenda og almennt hvað hefur verið í gangi hjá félaginu á liðnu starfstímabili.
Skráð félagsfólk í Klifurfélagi Vestfjarða er núna 87. Þar af eru 79 með íslenska kennitölu og telja því þegar við sendum fjöldatölur inn til ÍSÍ sem ákvarða t.d. hvað við fáum í lottótekjur. Við höfum ekki verið með námskeið fyrir skólabörn á þessu starfstímabili. Í sumar munum við taka þátt í leikjanámskeiði á vegum Ísafjarðarbæjar og taka á móti börnum.
Átta afmæli voru haldin í klifuraðstöðunni þetta starfsárið. Afmælin eru einmitt ein mikilvægasta fjáröflunarleið félagsins.
Nú fer ég yfir helstu viðburði síðasta starfstímabils.
Í maí heimsóttu okkur börn af Eyrarskjóli í þrjú skipti. Það er orðinn árlegur viðburður að Eyrarskjól komi þegar börnin eru í svokallaðri áræðnilotu. Alltaf gaman að fá yngstu börnin í heimsókn.
Tvö afmæli voru haldin í maí.
Yfir sumarmánuðina þrjá fór inniklifrið í frí. Á sumrin er nefnilega um að gera að klifra úti. Í klettinum í Valþjófsdal var heilmikið að gerast og ný leið bættist við í safnið. Ég skráði loks
svæðið inn á klifur.is sem heldur utan um klifurleiðir á Íslandi (athugið, er ekki það sama og klifra.is, síðan okkar). Einnig má finna leiðirnar í Valþjófsdal á vefsíðunni 8s.nu sem heldur utan um leiðir víða um veröld og er risastór.
Eitt afmæli var haldið í ágúst.
Eitt afmæli var haldið í september.
10. desember var formannafundur á vegum Klifursambands Íslands sem ég sat fyrir hönd félagsins.
Í desember var haldið eitt afmæli.
Nemendur úr Lýðskólanum á Flateyri stunduðu æfingar í inniklifuraðstöðunni í fjögur skipti á haustmisseri og eitt skipti á vormisseri. Var það í tengslum við fjallamennskunámskeið skólans.
15. janúar var haldinn fundur á vegum Klifursambands Íslands um útiklifur á Íslandi. Fundinn sátu auk mín, þau Rúnar Karlsson og Hjördís Björnsdóttir.
25. janúar komu börn af leikskólanum Sólborg í heimsókn.
Þrjú afmæli voru haldin í mars.
Í febrúar kom út grjótglímuleiðarvísir með hátt í 1000 leiðum á Ísafjarðarsvæðinu sem Brendan Kirby vann og gaf út. Þessi útgáfa er þrekvirki, leiðarvísirinn stórglæsilegur. Eintak af honum má finna á netinu, á vefsíðu Klifurfélags Vestfjarða og prentað eintak verður staðsett hér í inniklifuraðstöðunni. Hvet alla til að kynna sér leiðarvísinn.
19. mars var haldinn fundur um útiklifur á vegum Klifursamband Íslands. Ég sat fundinn f.h. Klifurfélags Vestfjarða.
Þetta er svona það helsta sem var á döfinni, þó ekki útilokað að ég hafi gleymt einhverju. En það er ljóst að inniklifuraðstaðan er mikið notuð fyrir ýmsa viðburði, námskeið og svo eru þar auðvitað almennir og opnir klifurtímar fjórum sinnum í viku.
Félagið fékk 100.000 kr. í samfélagsstyrk frá Orkubúi Vestfjarða. Sótt var um fyrir kaupum á grjótglímudýnum (crash pads).
Helen Cova rithöfundur styrkti félagið um 15.000 krónur. Hún kom í nokkur skipti með unglinga úr félagsmiðstöðinni á Flateyri, var ánægð og ákvað að styrkja félagið. Nokkrir einstaklingar greiddu inn á reikning félagsins eftir að hafa nýtt sér klifuraðstöðuna.
Aðeins um helstu útgjöld á tímabilinu. Félagið greiðir leigu fyrir salinn í skátaheimilinu. Það má finna allt um það í ársreikningi. Félagið verslaði grjótglímudýnur sem eru notaðar annars vegar hér í salnum undir Moon-veggnum og hins vegar þegar klifrað er úti. Þær eru hugsaðar til að félagsfólk geti fengið þær lánaðar. Versluðum fleiri bolta til að festa upp klifurgrip. Við keyptum svo dúk á lausu dýnurnar tvær í salnum. Seglagerðin sá um sauma utan um þær fyrir okkur.
Litlu herbergi hér inn af salnum var breytt í teygju- og æfingaaðstöðu með dýnum á gólfi, rimlum og ýmsum æfingabúnaði. Keyptum sem sagt búnað þar inn og allt var málað og gert fínt. Hvet ykkur til að skoða það.
Vil þakka Eddu Maríu Hagalín og Hjördísi Björnsdóttur sem eru með mér í aðalstjórn fyrir vel unnin störf sem og lykilhópnum eins og ég kalla hann. Í þeim hópi eru þeir sem hafa, auk stjórnarfólks, lykilaðgang að inniklifuraðstöðunni og skipta á milli sín að sjá um opnu klifurtímana, leiðbeina afmælishópum og sinna ýmsum störfum fyrir félagið. Þetta eru Alberto Roldán, Brendan Kirby, Ívar Tumi, Justas Šuscickis, Orla Mallon, Vaidas Valentukevicius, Isabelle Price, Katie Hall and Quique Budalike. Eins fá almennir iðkendur þakkir fyrir að mæta og hafa gaman af.
Þakka einnig Rúnari Óla fyrir að skoða ársreikninginn og vera fundarstjóri á aðalfundi og skátafélaginu Einherjar/Valkyrjan fyrir að leyfa okkur að vera með klifuraðstöðuna hér í gamla skátaheimilinu.
Ég hef verið formaður frá stofnun félagsins og notið þess heiðurs að fá að leiða félagið og uppbyggingu þess og klifuraðstöðunnar, með hjálp frá góðu fólki. En nú er ég að flytja frá Ísafirði og býð mig því ekki fram áfram. Vona að áhugasamt og virkt formannsefni stígi fram og taki við keflinu. Verð þó alveg örugglega eitthvað að skipta mér af áfram svona af gömlum vana. Hlakka til að sjá hvernig félagið og aðstaðan þróast.
Takk fyrir mig og sjáumst klifrandi.
Björgvin Hilmarsson
In English:
Westfjords Climbing Club
Chairman’s Report at the Annual General Meeting, April 20th, 2026
Welcome to the annual general meeting of the Westfjords Climbing Club (Klifurfélag Vestfjarða). I would like to point out that this report, along with the annual accounts and the club’s laws, can be found on our website at https://klifra.is/adalfundur/. There you can also find information from past annual general meetings. This page is updated annually, right before the meeting.
I would like to remind you that all the main information about the club can be found on the website klifra.is, including its purpose, where you can find the club´s laws, news, various information about climbing and climbing areas and much more.
The club is run by volunteers, people who are interested in climbing. It therefore relies primarily on donations. The main sponsors over the years have been Borea Adventures, which is clearly our main financial sponsor, Ísafjarðarbær, Arna and Orkubú Vestfjarða, among others. Many thanks to everyone who has contributed money and/or work.
I will never get tired of mentioning that the Westfjords Development Fund has denied the club a grant three times. However, I would like to mention that Brendan Kirby received a grant from the fund to make a bouldering guide book that he recently completed. More about that below.
As usual, I am going to go over the numbers of practitioners and generally what has been going on during the past period between annual general meetings.
Registered members of the Westfjords Climbing Club are currently 87. Of these, 79 have an Icelandic ID number and are counted when we send figures to ÍSÍ which determines, for example, what we receive in lottery revenue. We have not had courses for schoolchildren during this period. This summer we will participate in a play course organized by Ísafjarðarbær and welcome children.
Eight birthday parties were held at the climbing facility this year. Birthday parties are one of the most important fundraising events for the club.
Now I will go over the main events of the last period.
In May, children from Eyrarskjól kindergarten visited us three times. It has become an annual event that Eyrarskjól comes when the children are in their so-called “courage cycle”. It is always nice to have the youngest children visit.
Two birthday parties were held in May.
Over the three summer months, indoor climbing went on vacation. In the summer, outdoor climbing is what matters. There was a lot going on at the Valþjófsdalur crag and a new route was added to the collection. I finally registered the area on klifur.is, which lists climbing routes in Iceland (note, it´s not the same as klifra.is, our website). The routes in Valþjófsdalur can also be found on the website 8s.nu, which lists routes around the world and is huge.
One birthday party was held in August.
One birthday party was held in September.
On December 10th, a meeting of all chairmen of Icelandic climbing clubs was held, organized by the Icelandic Climbing Association, which I attended on behalf of the Westfjords Climbing Club.
One birthday party was held in December.
Students from Lýðskólinn Flateyri practiced in the climbing facility four times during the fall semester and once during the spring semester. This was in connection with the school’s mountaineering course.
On January 15th, a meeting was held, organized by the Icelandic Climbing Association about outdoor climbing in Iceland. In addition to myself, Rúnar Karlsson and Hjördís Björnsdóttir attended the meeting.
On January 25th, children from the Sólborg kindergarten came to visit.
Three birthday parties were held in March.
In February, a bouldering guide book with almost 1000 routes in the Ísafjörður area was published by Brendan Kirby. This publication is a mammoth undertaking, the guide is awesome. A copy of it can be found online, on the Westfjords Climbing Club´s website and a printed copy will be located here in the indoor climbing facility. I encourage everyone to take a good look at the guide.
On March 19th, a meeting on outdoor climbing was held by the Icelandic Climbing Association. I attended the meeting on behalf of the Westfjords Climbing Club.
This is about what was happening this period, but it is not unlikely that I have forgotten something. But it is clear that the climbing facility is much used for various events, courses and then of course there are general and open climbing sessions there four times a week.
The club received 100,000 kr. in community support from Orkubú Vestfjarða. An application was made for the purchase of bouldering crash pads.
Writer Helen Cova supported the club with 15,000 ISK. She came a few times with teenagers from the social center in Flateyri, was pleased and decided to support the club. Several individuals paid into the club’s account after using the climbing facilities.
A little bit about the main expenses during the period. The club pays rent for the hall in the scout center. You can find all about it in the annual accounts. The club bought bouldering crash pads that are used here in the hall under the Moon-wall and when climbing outside. They are intended for members to borrow when bouldering. We bought more bolts to attach climbing holds to the walls. We then bought fabric for the two loose thicker indoor mats in the hall. Seglagerðin took care of sewing them for us.
A small room off the hall was converted into a stretching and exercise facility with mattresses on the floor, bars and various exercise equipment. So, we bought equipment there and everything was painted and done nicely. I encourage you to check it out.
I would like to thank Edda María Hagalín and Hjördís Björnsdóttir, who are with me on the board of directors, for a job well done, as well as the key-group, as I call it. This group includes those who, in addition to the board members, have key access to the climbing facility and take turns taking care of the open climbing sessions, guiding birthday groups and doing various jobs for the club. These are Alberto Roldán, Brendan Kirby, Ívar Tumi, Justas
Šuscickis, Orla Mallon, Vaidas Valentukevicius, Isabelle Price, Katie Hall and Quique Budalike. General members get big thanks as well for attending and having fun.
I would also like to thank Rúnar Óli for reviewing the annual accounts and the scout club Einherjar/Valkyrjan for allowing us to have the climbing facility here in the old scout home.
I have been chairman, the club’s president, since the founding of the club and have had the honor of leading the development of the club and the climbing facilities, with the help of good people obviously. But now I´m about to move away from Ísafjörður and therefore will not be running for president again. I hope that an enthusiastic and active candidate for chairman will step forward and take over. Still, I´m pretty sure I will be interfering a bit from an old habit 🙂
I look forward to seeing how the club and the indoor facilities develop in the future.
Thanks and see you climbing.
Björgvin Hilmarsson
Toggle Content
Klifurfélag Vestfjarða
Aðalfundur 2025 / Annual general meeting 2025
Skýrsla formanns á aðalfundi 2025 / Club chairman’s report for 2025 (Icelandic and English)
Ársreikningur 2024 / Annual account 2024 (Icelandic only)
Lög Klifurfélags Vestfjarða / Laws of the Westfjords Climbing club (Icelandic only)
Fundargerð aðalfundar / Minutes of the annual meeting (Icelandic only)
Aðalfundur 2024 / Annual meeting 2024
Skýrsla formanns á aðalfundi 2024 / Club chairman’s report for 2024 (Icelandic and English)
Ársreikningur 2023 / Annual account 2023 (Icelandic only)
Lög Klifurfélags Vestfjarða / Laws of the Westfjords Climbing club (Icelandic only)
Fundargerð aðalfundar / Minutes of the annual meeting (Icelandic only)