Klifurnámskeið og -keppni
Sunnudaginn 16. febrúar verður haldið klifurnámskeið. Viku síðar verður svo skemmtileg klifurkeppni. Það er hann Brendan Kirby okkar sem sér um þetta. Allt fer fram á ensku og má finna frekari upplýsingar hér neðar á ensku. On Sunday the 16th of February there will be a climbing seminar. A week later there will be a […]
Lokað yfir jól og áramót
Föstu tímarnir í klifuraðstöðunni verða ekki í gangi yfir jól og áramót. Í dag (16. des) er síðasti tíminn fyrir jól en svo verður lokað fram að þrettándanum. Mánudaginn 6. janúar er svo aftur opið. Hafið það gott um hátíðirnar… sjáumst hress á næsta ári. Closed during xmas and new years The open sessions […]
Opnir tímar í inniklifuraðstöðunni
[English below] Opnu tímarnir í inniklifuraðstöðunni eru að fara í gang aftur eftir sumarfrí. Þeir eru nánast eins og síðasta vetur nema að fimmtudagstíminn byrjar korteri senna: Mánudagar kl. 17 – 19:30Miðvikudagar kl. 20 – 22Fimmtudagar kl. 16:30 – 17:30 (Fjölskyldutími, yngstu börnin)Sunnudagar kl. 16 – 18 (Fjölskyldutími, allur aldur) Eins og áður eru fimmtudagstímarnir […]
Klifuropnanir komnar í frí
[English below] Opnunartímarnir sem hafa verið í vetur eru ekki lengur í gangi. Fastir opnunartímar fara í frí nú yfir sumarið. Við byrjum aftur í haust og auglýsum það vel. En endrum og eins verður örugglega eitthvert okkar að klifra inni og þá munum við láta vita á messenger spjallþræði með litlum fyrirvara. Þeir sem […]
Framboð til stjórnar
[English below] Framboð til stjórnar Við minnum á aðalfundinn sem verður haldinn í gamla skátaheimilinu, þar sem inniklifuraðstaðan er (Mjallargötu 4, Ísafirði), fimmtudaginn 2. maí, klukkan 17:00. Allir velkomnir og hægt að skrá sig í félagið á staðnum. Hér með er tilkynnt um þá sem bjóða sig fram í stjórn: Björgvin Hilmarsson býður sig fram […]
Aðalfundarboð
Aðalfundarboð [English below] Klifurfélag Vestfjarða heldur aðalfund sinn, fimmtudaginn 2. maí nk., klukkan 17:00. Fundurinn verður í gamla skátaheimilinu, Mjallargötu 4 á Ísafirði en þar er einmitt inniklifuraðstaða félagsins. Allir eru velkomnir á fundinn, ungir sem aldnir. Fólki býðst að ganga í félagið til að styðja við það og njóta þeirra fríðinda sem aðild […]
Börn af Eyrarskjóli í heimsókn
Síðustu þrjá þriðjudagsmorgna hefur leikskólinn Eyrarskjól komið með litla hópa af börnum í heimsókn. Leikskólinn er með svokallaða áræðnilotu í gangi þar sem kjarkur, kraftur, virkni og frumkvæði eru hugtök sem höfð eru í huga. Börnin hafa reynt sig við hinar ýmsu leiðir sem eru í boði og skemmt sér vel. Fimleikahringirnir eru svo alltaf […]
Áframhaldandi opnun
English below Opnir tímar í klifuraðstöðunni verða þessir þar til annað verður tilkynnt. Athugið að frá því sem var í febrúar hefur sunnudagstíminn verið færður aftur um einn klukkutíma. Mánudagar kl. 17 – 19:30Miðvikudagar kl. 20 – 22Fimmtudagar kl. 16:15 – 18 (Fjölskyldutími, yngstu börnin)Sunnudagar kl. 16 – 18 (Fjölskyldutími, allur aldur) Eins og verið […]
Opnunartímar í febrúar
Opnunartímar í febrúar English below Opnun í febrúar verður sem hér segir: Mánudagar kl. 17 – 19:30Miðvikudagar kl. 20 – 22Fimmtudagar kl. 16:15 – 18 (Fjölskyldutími, yngstu börnin)Sunnudagar kl. 15 – 17 (Fjölskyldutími, allur aldur) Þessi dagskrá gildir út febrúar en fyrsti tími er þó miðvikudaginn 31. jan. Á fimmtudögum geta foreldar komið sem vilja […]
Námskeið fyrir 3. og 4. bekk Grunnskólans á Ísafirði
Nú standa yfir klifurnámskeið fyrir börn í 3. og 4. bekk Grunnskólans á Ísafirði. Á námskeiðinu kynnast börnin klifrinu og hafa komist að því að það er mjög skemmtilegt og góð hreyfing. Orkuboltar fá mikla útrás og það reynir á nýja og óvænta þætti, líkamlega sem andlega. Námskeiðin fara fram í gamla skátaheimilinu að Mjallargötu […]