Grjótglíma
Grjótglíma er íslenska heitið yfir “bouldering”. Þá er klifrað á misstórum steinum eða í lágum klettum. Ef klifrari fellur úr leið lendir hann á færanlegri dýnu en er ekki það hátt að hann þurfi að vera í línu. Aðeins þarf lágmarksbúnað til að stunda grjótglímu.
Um grjótglímu
Grjótglíma er sú tegund klifurs sem krefst minnst af búnaði. Eins og hún er oftast stunduð þarf klifrarinn aðeins klifurskó, kalkpoka og dýnu. Það þarf ekki línu, tvista, tryggingatól né annað sem þarf t.d. í sport- og dótaklifri. Dýnurnar eru léttar og meðfærilegar enda þurfa þær aðeins að mýkja tiltölulega stutt fall.
Mjög víða er hægt er að finna steina eða lága kletta sem henta fyrir grjótglímu. Vestfirðir eru engin undantekning nema síður sé.
Grjótglíma á Vestfjörðum
Nú nýverið kom út leiðarvísir yfir grjótglímuleiðir á Ísafirði og í nágrenni hans. Þessi leiðarvísir er mjög yfirgripsmikill og má í honum finna hátt í þúsund leiðir eða “problems” eins og það er kallað á ensku. Það er því óhætt að segja að þetta sé langstærsti grjótglímuleiðarvísi sem litið hefur dagsins ljós á Íslandi.
Það er hann Brendan Kirby sem setti leiðarvísinn saman auk þess að vera sá sem setti upp og klifraði langflestar leiðirnar. Eitthvað hafði áður verið klifrað en ekki skrásett. Stafræna útgáfu af leiðarvísinum má finna hér.
Viltu klifra?
Hér finnur þú upplýsingar um mismunandi gerðir klifurs, klifursvæði og fleira.

Inniklifur
Klifurfélag Vestfjarða hefur byggt upp inniklifuraðstöðu á Ísafirði, í gamla skátaheimilinu.

Sportklifur
Línuklifur eða sportklifur eins og það er einnig kallað má stunda víðsvegar um Vestfirði.

Grjótglíma
Þú þarft bara lágmarksbúnað til að stunda grjótglímu.

Ísklifur
Vestfirðir bjóða oft upp á heimsklassa ísklifuraðstæður

Dótaklifur
Ekki það sem þú kannski heldur. Með "dóti" er átt við ákveðinn öryggisbúnað.